Sérhæfðir sjóðir eru eingöngu ætlaðir fagfjárfestum, enda er fjárfest í flóknari afurðum, upplýsingagjöf takmörkuð og innlausnarskylda ekki sambærileg við hefðbundna sjóði sem ætlaðir eru almennum fjárfestum. Í lögum eru ekki settar neinar kvaðir um efni fjárfestingarstefnu sérhæfðra sjóða og geta fjárfestingarstefnur slíkra sjóða því verið mjög mismunandi og spannað þannig allt frá einni einstakri fjárfestingu upp í dreifðari eignasöfn. Um sérhæfða sjóði gilda lög nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Vefsíðan notast við vafrakökur til þess að bæta notendaupplifun, greiningu á notendum og fleira. Afstilling á vafrakökum getur haft áhrif á upplifun þína á vefnum